Pep Guardiola gaf stutt viðtal við vefsíðu Manchester City í dag þar sem hann fullvissaði stuðningsmenn um að hann myndi ekki breyta leikstíl liðsins eftir komu nýrra leikmanna.
Man City er búið að selja Oleskandr Zinchenko, Gabriel Jesus og Raheem Sterling og kaupa Erling Haaland, Julian Alvarez og Kalvin Phillips í staðinn.
„Við munum ekki breyta okkar leikstíl. Það er mikilvægt að nýir leikmenn aðlagist leikstílnum og læri að nota sína styrkleika. Af hverju ættum við að breyta leikstílnum eftir frábæra spilamennsku á síðustu árum?" sagði Guardiola.
„Við viljum auðvitað allt það besta fyrir Erling, Julian og Kalvin. Við viljum að þeir séu besta útgáfan af sjálfum sér og til þess þurfa þeir aðlögunartíma til að kynnast leikstílnum okkar.
„Ég er nokkuð viss um að þeir séu strax komnir langt í aðlögunarferlinu. Þeir eru bara búnir að vera saman í nokkra daga en stemningin er frábær."