Jói Berg skallaður og fékk rautt í kjölfarið


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður Burnley fékk að líta rauða spjaldið þegar liðið mætti Real Betis í kvöld.
Burnley var marki yfir í hálfleik en bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald eftir mikil læti undir lok fyrri hálfleiks.
Luiz Felipe leikmaður Betis fékk að líta rauða spjaldið fyrir að skalla Jóhann Berg og upp úr því brutust út mikil læti. Í kjölfarið fékk Jóhann Berg einnig brottvísun.
Varnarmaðurinn reyndi Marc Bartra jafnaði metin í upphafi síðari hálfleik og úrslitin ráðin, 1-1 lokatölur.
44: Luiz Felipe has been sent off after the Real Betis man headbutted JBG ????
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) July 28, 2023
45: JBG has also now been sent off ????
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) July 28, 2023



