Sjáðu þegar Jóhann Berg var rekinn af velli


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson fékk að líta rauða spjaldið í 1-1 jafntefli Burnley gegn Real Betis í æfingaleik í kvöld.
Það urðu mikil læti þegar Luiz Felipe leikmaður Betis tæklaði Jóhann Berg. Íslenski landsliðsmaðurinn virtist sparka í áttina að Felipe sem fór illa í hann.
Hann skallaði Jóhann Berg og ýtti hressilega í hann. Í kjölfarið hópuðust leikmenn beggja liða saman og hófust mikil læti.
Jóhann Berg og Felipe fengu að lokum báðir rauða spjaldið.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Burnley var marki yfir í hálfleik.
Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Luiz Felipe & Gudmundsson Double Red Card Fight | Real Betis vs Burnley pic.twitter.com/tS38xMFJ4p
— VISÃO (@VisaoHD) July 28, 2023



