„Skiptir engu máli hvernig, bara að vinna leikinn"
Auglýsing

Dean Martin, þjálfari Selfoss.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin, þjálfari Selfoss.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss vann góðan sigur gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjudeildinni þennan laugardaginn.
Selfyssingar felldu Ólsara með þessum sigri og tryggðu um leið sæti sitt í Lengjudeildinni að ári.
„Mér fannst þeir koma út og spila ágætlega á köflum í seinni hálfleik. Þeir yfirspiluðu okkur nokkrum sinnum á miðjunni og náðu nokkrum færum," sagði Dean Martin, þjálfari Selfoss, í viðtali eftir leikinn.
„Þetta er lið sem er að berjast fyrir lífi sínu og þeir gáfu allt í þetta. Fyrir okkur eru þetta góð úrslit."
Selfoss er að enda mótið vel. „Markmiðið í dag var að koma að vinna leikinn. Það skiptir engu máli hvernig, bara að vinna leikinn," sagði þjálfari Selfyssinga.