Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. ágúst 2022 14:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stjóri Ajax um Antony: Snýst allt um peninga
Mynd: EPA

Antony er við það að ganga til liðs við Manchester United frá Ajax en hann var ekki með hollenska liðinu sem vann Utrecht á útivelli 2-0 í dag.


Kaupverðið er talið vera í kringum 100 milljónir evra en það er búist við því að Antony verði orðinn leikmaður United innan tveggja sólarhringa.

Alfred Schreuder stjóri Ajax tjáði sig um Antony eftir leikinn í dag.

„Þetta snýst allt um peninga, það er sorglegt. Svona er heimurinn í dag, það er mjög sorglegt og ég sætti mig ekki við þetta," sagði Schreuder.


Athugasemdir
banner
banner