Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. september 2020 08:30
Aksentije Milisic
Mirror: Man Utd hefur áhuga á Kante
Verða þessir tveir liðsfélagar?
Verða þessir tveir liðsfélagar?
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur haft samband við Chelsea varðandi N'Golo Kante og hefur félagið áhuga á að fá þennan franska miðjumann til liðsins. Þessu greinir Mirror frá.

Kante hafði mikið verið orðaður við Inter í sumar og vildi hans gamli stjóri, Antonio Conte, fá hann til Ítalíu. Piero Ausilio, formaður Inter, hefur útilokað það að Kante komi vegna þess að Chelsea vilji ekki hlusta á tilboð í leikmanninn.

Manchester United hefur keypt einn leikmann í sumar en það er Donny van de Beek sem kom frá Ajax. United hefur mikið verið orðað við Sancho í sumar og þá vilja stuðningsmenn liðsins ólmir fá nýjan varnarmann til liðsins.

Þetta eru því nokkuð óvæntar fréttir en ljóst er að það þarf mikið að gerast svo Chelsea selji Kante til Man Utd.
Athugasemdir
banner
banner