Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 28. október 2019 18:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grétar Snær semur við Fjölni (Staðfest)
Mynd: Fjölnir
Fjölnir tilkynnti fyrir skömmu að Grétar Snær Gunnarsson hefði skrifað undir samning við félagið.

Grétar er 22 ára miðjumaður sem leikið hefur með öllum yngri landsliðum Íslands. Grétar lék 20 deildarleiki með Víking Ó. í Inkasso-deildinni í sumar.

Grétar er uppalinn hjá Haukum en færði sig ungur að árum til FH. Hjá FH lék hann einn leik fyrir félagið í Pepsi-deildinni árið 2016 og einn í Borgunarbikarnum sama ár. Grétar lék með HK í Inkasso-deildinni árið 2017.

Árið 2018 lék Grétar með HB í Færeyjum og varð Færeyjarmeistari með liðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner