Julian Nagelsmann, knattspyrnustjóri RB Leipzig, hefur vakið athygli fyrir jakkafötin sem hann mætti í á Old Trafford í leik gegn Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld.
Nagelsmann er ungur og efnilegur knattspyrnustjóri, en hann er aðeins 33 ára gamall.
Það er ekki oft sem hann mætir í jakkafötum en þegar hann mætir í jakkafötum, þá mætir hann ekki í hefðbundnum jakkafötum. Hann hugsar út fyrir boxið.
Hér að neðan er mynd af Nagelsmann í jakkafötunum sem hann mætti í á Old Trafford í kvöld. Þessi sérstöku jakkaföt hafa fengið mikið umtal á samfélagsmiðlum.
Staðan er 1-0 fyrir Man Utd en Mason Greenwood var að skora.
Julian Nagelsmann dressed like he’s about to try pitch me a brand new marketing compaign, complete with global talkability, massive market cut-through, and stratospheric brand awareness. pic.twitter.com/Sxk8kKAnaV
— Paddy Power (@paddypower) October 28, 2020
Cry. For. Help. pic.twitter.com/DKrD6sZuE5
— Nooruddean (@BeardedGenius) October 28, 2020
Athugasemdir