Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 28. október 2020 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pickford réði lífverði í kjölfar hótanna stuðningsmanna Liverpool
Tæklingin umtalaða
Tæklingin umtalaða
Mynd: Getty Images
Jordan Pickford og eiginkona hans þurfa á vernd lífvarða eftir að þau bæði hafa fengið líflátshótanir. Enski landsliðsmarkvörðurinn hefur þurft að auka öryggisgæslu við heimili sitt í kjölfar leiksins gegn Liverpool fyrir rúmri viku síðan. Það var í þeim leik sem Pickford tæklaði Virgil van Dijk og urðu afleiðingar tæklingarinnar þær að van Dijk þarf að fara í aðgerð. Eftir að ljóst var að Pickford yrði ekki refsað þá fékk Pickford yfir sig harkalega gagnrýni.

Sportsmail hefur undir höndum upplýsingar um það að Pickford hafi búið til einhvers konar verndarhring í kringum fjölskyldu sína vegna ótta í kjölfar hótanna.

„Jordan hefur brugðið vegna þeirra skilaboða sem hann hefur fengið síðan leiknum lauk. Hann er staðráðinn í að gera hvað sem þarf til að halda fjölskyldu sinni öruggri," segir heimildarmaður Sportsmail.

Pickord hefur beðið sérfræðing hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggisgæslu til sjá um öryggismálin sín og fjölskyldunnar. Í síðustu viku voru lífverðir að gæta heimilis Pickford í Cheshire. Pickford býr þar með eiginkonu sinni Megan og eins árs sonar þeirra. Sérfræðingar í öryggismálum hefur ráðlagt fjölskyldunni að halda sig fjarri samfélagsmiðlum til að koma í veg fyrir að það vekji athyglli á staðsetningu þeirra.

Löglegreglan í Merseyside greindi frá því í síðustu viku að hún væri að rannsaka tvö tíst ætluð Pickford og liðsfélaga hans Richarlison.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner