Fotbolti.net
28.10.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Sarri: Þetta var okkar besti leikur á tímabilinu

Maurizio Sarri

Maurizio Sarri

Canon

Mynd: EPA

Maurizio Sarri var hæstánægður með frammistöðu sinna manna í Lazio í 1-0 sigrinum á Fiorentina í Seríu A í gær en hann segir þetta besta leik tímabilsins til þessa.
Pedro Rodriguez gerði eina mark Lazio í leiknum í gær eftir sendingu frá Sergej Milinkovic-Savic.

Sarri var virkilega ánægður með frammistöðuna og sérstaklega varnarskipulagið.

„Mér fannst við spila okkar besta leik til þessa á tímabilinu, jafnvel betri leikur en gegn Inter og Roma," sagði Sarri.

„Við vorum mjög öflugir varnarlega. Eitt af plönunum sem við vorum búnir að undirbúa var að færa Milinkovic-Savic framar til að búa til fjóra gegn fjóra taktík. Við gerðum það vel og skoruðum," sagði hann ennfremur.

Lazio er í 6. sæti með 17 stig eftir fyrstu tíu leiki tímabilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.