28.12.21 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rui Costa hugsar um að ráða Pirlo til starfa

Andrea Pirlo.

Mynd: Getty Images

Andrea Pirlo.

Mynd: Getty Images
Andrea Pirlo, fyrrum þjálfari Juventus, er sagður á lista hjá portúgalska félaginu Benfica.
Staða Jorge Jesus hjá Benfica er ekki mjög örugg og er félagið farið að undirbúa sig fyrir næsta skref - ef hann yfirgefur félagið og það þarf að finna nýjan þjálfara.
Rui Costa, fyrrum landsliðsmaður hjá Portúgal, er forseti Benfica og hann er með sinn fyrrum liðsfélaga - Pirlo - á lista.
Þetta herma heimildir Calciomercato á Ítalíu. Stjórn Benfica er sögð vilja fá portúgalskan stjóra og hafa nöfn Paulo Fonseca og Nuno Espirito Santo verið nefnd í tengslum við starfið. En nafn Pirlo er líka kastað fram.
Costa og Pirlo spiluðu saman hjá AC Milan á sínum tíma. Pirlo, sem var stórkostlegur miðjumaður, á eitt ár að baki sem þjálfari; hann stýrði Juventus á síðasta tímabili.