Fotbolti.net
29.01.20 - 10:35
Elvar Geir Magnússon

Bergwijn til Tottenham (Staðfest)

Steven Bergwijn.

Steven Bergwijn.

Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham hefur keypt hollenska framherjann Steven Bergwijn frá hollenska félaginu PSV Eindhoven. Hann hefur gert fimm og hálfs árs samning.

Þessi 22 ára leikmaður mun klæðast treyju númer 23, sem Christian Eriksen klæddist áður en hann skellti sér til Inter.

Aðal staða Bergwijn er vinstri vængurinn en hann getur líka spilað í holunni eða sem fremsti maður.

Hollenski landsliðsmaðurinn lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið PSV sautján ára gamall. Hann hefur tekið þátt í þremur Hollandsmeistaratitlum liðsins. Á þessu tímabili er hann búinn að skora sex mörk í 29 leikjum.
Í leik með PSV.

Í leik með PSV.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.