Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. janúar 2020 15:00
Elvar Geir Magnússon
Bony kominn til Sádi-Arabíu (Staðfest)
Wilfried Bony.
Wilfried Bony.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Wilfried Bony hefur loksins fundið nýtt félag en hann yfirgaf Swansea í fyrra.

Bony er kominn til Al Ittihad í Sádi-Arabíu en liðið er í tólfta sæti af sextán liðum deildarinnar.

Á síðasta ári lék Bony á lánssamningi hjá Heimi Hallgrímssyni og lærisveinum í Al-Arabi í Katar.

Bony er 31 árs og skoraði mikið fyrir Swansea 2013-2015. Hann var þá fenginn til Manchester City þar sem hann skoraði sex mörk í 36 leikjum og hefur átt erfitt uppdráttar á ferlinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner