Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 29. janúar 2020 13:48
Elvar Geir Magnússon
Pablo Marí til Arsenal (Staðfest)
Pablo Marí er kominn til Arsenal.
Pablo Marí er kominn til Arsenal.
Mynd: Arsenal
Arsenal hefur kynnt varnarmanninn Pablo Marí sem nýjan leikmann liðsins.

Flamengo í Brasilíu kvaddi leikmanninn formlega á Twitter fyrr í dag. Þar er honum þakkað fyrir tíma sinn hjá félaginu.

Marí þekkir England en hann var þrjú ár hjá Manchester City án þess að leika deildarleik fyrir félagið.

Marí er 26 ára og hefur Arsenal komist að samkomulagi við Flamengo um að fá leikmanninn lánaðan með möguleika á kaupum að lánstíma loknum.

Flamengo er Brasilíumeistari og vann Copa Libertadores, meistarakeppni Suður-Ameríku, á síðasta ári.

Mikill vandræðagangur hefur verið á varnarleik Arsenal í nokkurn tíma og á heimasíðu félagsins er sagt að með tilkomu Marí komi meiri möguleikar varnarlega.


Athugasemdir
banner
banner