29.02.20 - 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
England: Watford skellti Liverpool - Sarr hetjan

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford 3 - 0 Liverpool
1-0 Ismaila Sarr ('53)
2-0 Ismaila Sarr ('60)
3-0 Troy Deeney ('72)
1-0 Ismaila Sarr ('53)
2-0 Ismaila Sarr ('60)
3-0 Troy Deeney ('72)
Fallbaráttulið Watford tók á móti Liverpool í síðasta leik dagsins í enska boltanum.
Gestirnir virkuðu slappir og voru heppnir að lenda ekki undir á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks, þegar Troy Deeney klúðraði tvisvar sinnum úr dauðafæri.
Ismaila Sarr kom heimamönnum yfir í upphafi síðari hálfleiks. Hann hafði betur í baráttunni við Andy Robertson og skoraði eftir fyrirgjöf frá Abdoulaye Doucoure.
Sarr tvöfaldaði forystuna skömmu síðar eftir frábæran undirbúning frá Will Hughes og Troy Deeney og kom þriðja markið á 72. mínútu. Sarr komst þá í sendingu í vörn Liverpool og gaf boltann á Deeney sem skoraði laglegt mark.
Sarr komst nálægt því að fullkomna þrennuna en meira var ekki skorað og fyllilega verðskuldaður sigur Watford staðreynd.
Þetta er fyrsta deildartap Liverpool á tímabilinu en lærisveinar Jürgen Klopp eru enn með ótrúlega forystu á toppi deildarinnar.
Watford komst upp úr fallsæti með sigrinum, þar sem liðið er jafnt Bournemouth og West Ham með 27 stig eftir 28 umferðir.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |