Fotbolti.net
29.02.20 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu klúður Zaha fyrir opnu marki

Sjáðu klúður Zaha fyrir opnu marki
Canon

Mynd: Getty Images

Wilfried Zaha hefur ekki tekist að skína sérlega skært með varnarsinnuðu liði Crystal Palace á tímabilinu.
Hann komst nálægt því að skora er Crystal Palace heimsótti Brighton í hádegisleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en skaut í stöngina úr algjöru dauðafæri.

Zaha var á fleygiferð þegar boltinn barst til hans. Hann var með opið mark fyrir framan sig en náði ekki að stýra knettinum framhjá stönginni úr nokkuð þröngu færi.

Zaha er kominn með þrjú mörk og fimm stoðsendingar í 28 leikjum á tímabilinu. Klúðrið úr hádegisleiknum má sjá hér.

Crystal Palace vann leikinn 0-1 og er um miðja deild, fimm stigum frá Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.