Miðjumaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur framlengt samning sinn við Víking um þrjú ár.
Fyrri samningur Viktors við félagið átti að renna út í október á þessu ári.
Hinn 21 árs gamli Viktor á að baki 44 leiki fyrir meistaraflokk og í þeim hefur hann skorað eitt mark.
Viktor á að auki 18 landsleiki þar sem hann hefur skorað 2 mörk og hefur komið við sögu í öllum yngri landsliðum.
Athugasemdir