Fotbolti.net
29.03.23 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rashford hafnar sögusögnum - „Þetta er kjaftæði"

Rashford hafnar sögusögnum - „Þetta er kjaftæði"
Canon

Mynd: EPA

Marcus Rashford framherji Manchester United hefur sjaldan verið jafn góður og á þessu tímabili. Það hefur verið slúðrað um að hann heimti 500 þúsund pund í vikulaun.

Hann þvertekur fyrir það á Instagram síðu sinni en núgildandi samningur hans rennur út sumarið 2024.

Félagið vill semja til langtíma við hann en þessi 25 ára gamli framherji hefur skorað 27 mörk í 44 leikjum í öllum keppnum á þessari leiktíð.

„Bara áður en þetta fer á flug þá er þetta algjört kjaftæði. Ég og félagið höfum sýnt hvort öðru virðingu og þannig verður það. Ég einbeiti mér algjörlega að því að enda tímabilið eins vel og hægt er í deildinni og vinna titla," skrifaði Rashford.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.