Fotbolti.net
29.04.23 - 22:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Origo vellinum

Hetja Vals: Gerist svo hratt og maður setur hann bara í netið

Auglýsing
Birkir Heimisson.

Birkir Heimisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er mjög glaður að hafa komið þessu marki inn í lokin," sagði Birkir Heimisson, leikmaður Vals, eftir sigur gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í kvöld.

Sigurinn var heldur betur dramatískur. Birkir gerði sigurmarkið á 96. mínútu.
„Það var geggjað að sjá boltann í netinu."

Valur komst í 2-0 en missti forskotið frá sér í seinni hálfleiknum. „Mér fannst við vera soft, við vorum ekki að fara í návígin af 100 prósent krafti. Þá refsa þeir okkur."

Um sigurmarkið sagði hann. „Addi setur mig upp á miðjuna þegar það eru þrjár mínútur eftir eða eitthvað. Ég man ekki hver var með boltinn en ég tek sprettinn inn í teig og fæ hann. Þetta gerist svo hratt og maður setur hann bara í netið."

„Það er alltaf gaman að skora í uppbótartíma. Þetta eru þrjú stig, við tökum þau með okkur og höldum áfram."

Birkir hefur verið að spila í miðverði í undanförnum leikjum en í viðtalinu hér að ofan er hann spurður út í það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.