Fotbolti.net
29.04.23 - 17:19
Sölvi Haraldsson

Rúnar Páll eftir tap í Kórnum: Þetta var glórulaus dómgæsla

Auglýsing
Rúnar Páll eftir tap í Kórnum: Þetta var glórulaus dómgæsla
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var mjög fín frammistaða frá mínu liði. Við vorum bara klaufar að missa þetta niður í eitt núll. En aðdragandi marksins var náttúrulega kolólöglegur. Hann (Atli) fékk boltann í höndina áður en hann komst inn fyrir Orra. Þetta var glórulaus dómgæsla að mínu viti og það var engin heil brú í dómgæslunni í dag, því miður. En ég ætla ekki að kenna því um. Það er bara þess valdandi að við töpum þessum leik. Annars var leikurinn í góðu jafnvægi hjá báðum liðum.“ sagði Rúnar Páll, þjálfari Fylkis, eftir súrt 1-0 tap í Kórnum gegn HK.

Það vakti athygli að hvorki Emil né Ragnar Bragi voru í hóp hjá Fylki í dag en hver er ástæðan fyrir því?

„Ragnar er bara því miður meiddu og við gáfum Emil bara frí að spila hérna inni vegna hans fyrrverandi meiðslasögu.“

Var engin pæling að styrkja liðið fyrir gluggalok?

„Nei.“

Næsti leikur er heimaleikur gegn Val, hvernig leggst hann í þig?

„Hann leggst bara mjög vel í mig. Svo lengi sem við höldum áfram að sýna góða frammistöðu þá kvíði ég engu.“

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.