Fotbolti.net
29.05.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Jimmy Floyd Hasselbaink tekur við Antwerpen (Staðfest)

Jimmy Floyd Hasselbaink tekur við Antwerpen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jimmy Floyd Hasselbaink hefur verið ráðinn þjálfari hjá Royal Antwerpen í Belgíu.

Hasselbaink hefur verið í þjálfaraliði Nottingham Forest undanfarið en hann mun nú spreyta sig sem aðalþjálfari í fyrsta skipti.
,,Ég er mjög spenntur fyrir þessu tækifæri,\" sagði Hasselbaink eftir að hann var kynntur til leiks í morgun.

Hinn 41 árs gamli Hasselbaink lék með Chelsea frá 2000 til 2004 þar sem hann og Eiður Smári Guðjohnsen mynduðu baneitrað framherjapar.

Hasselbaink lék einnig með Leeds United, Atlético Madrid, Middlesbrough, Charlton Athletic og Cardiff City á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.