Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs karla, fór ekki fögrum orðum um frammistöðu Mesut Özil í 4-1 tapi Arsenal gegn Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld.
Eiður, sem lék árum áður með Chelsea, var sérfræðingur hjá BT Sports ásamt þeim Cesc Fabregas og Martin Keown í kvöld og ræddi hann frammistöðu Özil.
Þýski sóknartengiliðurinn var arfaslakur í leiknum í kvöld og fékk 3 í einkunn hjá Mirror meðal annars.
Eiður ræddi frammistöðu hans og lét hann heyra það.
„Özil gekk þarna um og bjóst við að fá lófaklapp frá stuðningsmönnum. Ef ég myndi eiga svona frammistöðu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þá myndi ég hreinlega skammast mín í hrúgu á leið af vellinum. Alveg ótrúlegt," sagði Eiður hjá BT Sports.
Athugasemdir