Adrian Justinussen, leikmaður HB og aðalstjarnan í færeysku úrvalsdeildinni, verður frá keppni næstu sex vikurnar eftir að hafa fótbrotnað.
Adrian meiddist í 3-0 sigri HB gegn Víkingi í gærkvöldi.
Adrian meiddist í 3-0 sigri HB gegn Víkingi í gærkvöldi.
Meiðslin eru mikið áfall fyrir HB sem er með fullt hús stiga á toppnum í Færeyjum eftir fjórar umferðir.
Adrian skoraði þrennu úr aukaspyrnu gegn AB Argir á dögunum og vakti mikla athygli fyrir.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, þjálfaði Adrian á síðasta tímabili og hann hefur lýst yfir áhuga á að fá hann til Íslands.
Sjá einnig:
Adrian setti heimsmet - Heimir mun taka upp símann
Athugasemdir