Barcelona hefur sent formlegt tilboð í Julian Alvarez, sóknarmann Atletico Madrid.
Börsungar vilja fá hann til að fylla skarð Robert Lewandowski.
Börsungar vilja fá hann til að fylla skarð Robert Lewandowski.
Alvarez virðist vera opinn fyrir því að færa sig um set og í forgangi sé að fara til Börsunga.
Atletico hefur sett 150 milljóna evra verðmiða og er viljugra til að selja leikmanninn til Arsenal eða Paris Saint-Germain ef tilboð koma þaðan.
Félagaskiptaskúbbarinn Fabrizio Romano segir að tilboð Börsunga hafi hljóðað upp á 100 milljónir evra. El Chiringuito segir að Barcelona búist ekki við því að tilboðið verði samþykkt heldur sé litið á það sem fyrsta tilboð í viðræðum.
???????????? BREAKING: Barcelona send first official proposal to Atlético Madrid for Julián Álvarez worth €100m.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 29, 2026
No add-ons, no players involved.
Atlético, not happy about the situation over last 24h — but Julián has already asked to leave. pic.twitter.com/FpLq1dde3C



