Aníta: Baráttan alveg til staðar

Aníta Lísa Svansdóttir, þjálfari Fram

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Aníta Lísa Svansdóttir, þjálfari Fram

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Við unnum fyrir þessu og gerðum það sem við þurftum að gera,'' segir Aníta Lísa Svansdóttir, þjálfari Fram, eftir 0-2 sigur gegn KR í 9. umferð Lengjudeild kvenna í dag.
„Við héldum hreinu, skoruðum tvö mörk og hefðum alveg geta skorað fleiri mörk. Við erum bara ágætlega sátt í dag að fara héðan með þrjú stig.''
„Fyrsti grasleikurinn okkar í sumar, maður sá alveg smá merki um það að við þurftum að bregðast öðruvísi við hvernig boltinn skoppaði, við áttum smá erfitt með það. Í heildinna var baráttan alveg til staðar,''
„Auðvitað er gott að vinna alla leiki og þrjú stig fyrir okkur eru mjög mikilvæg. En auðvitað er gott að liðin í kringum okkur tapi stigum, eins og leikurinn í dag er góður á því leiti að að við löbbum í burtu með þrjú stig á meðan KR fær núll.''
„Við höfum verið að fá á okkur mörk snemma, þannig þetta var nauðsynlegt. Við höfum verið að vinna mikið í því að byrja leikina strax og við gerðum það í dag,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.




