Huddersfield 0 - 1 Burnley
0-1 Ian Maatsen ('18)
Ian Maatsen, lánsmaður frá Chelsea, gerði eina mark leiksins er Burnley lagði Huddersfield að velli í fyrsta leik tímabilsins í Championship deildinni.
Vincent Kompany var kátur að leikslokum enda spilaði Burnley gríðarlega vel í leiknum og var við algjöra stjórn í 90 mínútur. Sigurinn var aldrei í hættu.
Burnley komst nokkrum sinnum nálægt því að tvöfalda forystuna en inn vildi boltinn ekki og urðu lokatölur 0-1.
Huddersfield átti aðeins tvær skráðar marktilraunir í leiknum og hæfði hvorug þeirra markrammann.
Athugasemdir