Tyrkneska félagið Fenerbahce er búið að gefa út yfirlýsingu sem fordæmir hegðun hluta stuðningsmanna félagsins í heimaleik gegn Dynamo Kyiv í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Gestirnir frá Úkraínu tóku forystuna á 58. mínútu og brugðust stuðningsmenn Fenerbahce við með því að syngja nafn Vladímír Pútín.
„Á 58. mínútu leiksins skoruðu andstæðingarnir mark og ollu ofsafengin fagnaðarlæti þeirra, þá sérstaklega varamarkvarðarins sem hefur leikið í tyrknesku deildinni, því að hluti stuðningsmanna okkar brást við í 20 sekúndur í 90 mínútna leik," segir meðal annars í yfirlýsingunni.
„Hvaða ástæður sem kunna að liggja að baki þá samþykkir Fenerbahce Sports Club þessa hegðun ekki. Allir ættu að þekkja okkar stöðu sem félag, sérstaklega eftir að við skipulögðum æfingaleik við Shakhtar Donetsk í apríl."
Fenerbahce tókst að jafna á lokamínútum leiksins en gestirnir frá Kænugarði náðu að skora sigurmark á lokakafla framlengingarinnar. Dynamo mætir Sturm Graz frá Austurríki í næsta leik.
Sungu til stuðnings Pútín í leik gegn Dynamo frá Kænugarði