Fotbolti.net
29.07.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Granada fær fjóra leikmenn og fimm milljónir fyrir Milla (Staðfest)

Granada fær fjóra leikmenn og fimm milljónir fyrir Milla (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Granada féll úr efstu deild á Spáni á síðustu leiktíð og var Getafe að ljúka við að kaupa Luis Milla frá fallna félaginu fyrir fimm milljónir evra og fjóra leikmenn sem fara yfir í skiptum.

Milla er 27 ára gamall miðjumaður sem átti fast sæti í byrjunarliði Granada á síðustu leiktíð. Hann skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar er Granada féll en vakti áhuga annarra félaga í deildinni.

Getafe borgar 5 milljónir evra fyrir Milla en peningurinn nægir ekki því Granada fær einnig fjóra leikmenn til sín, tvo í skiptum og tvo að láni.

Leikmennirnir sem skipta yfir til Granada í B-deildina eru Miguel Rubio og Ignasi Miquel, fyrrum varnarmaður Arsenal.  Þá verða varnarmennirnir Jonathan Silva og Erick Cabacko hjá félaginu að láni út næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.