Jóhann Kristinn: Varnarleikurinn alveg hörmulegur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er vonsvikinn og ósáttur. Ég finn til með liðinu mínu að tapa svona illa á heimavelli," sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA eftir stórt tap gegn Þrótti í Bestu deild kvenna í kvöld.
„Við eigum ekki að sýna svona varnarleik eins og við gerðum í dag, hann var ekki til neins útflutnings, eiginlega alveg hörmulegur. Við byrjuðum hræðilega og fengum verðskuldaðan löðrung, þær hefðu mögulega átt að gera tvö mörk snemma."
„Við megum ekki missa trú á því sem við erum að gera. Við reynum að halda í hana þó við séum að koma úr tveggja heimaleikja törn ef hægt er að segja það með 0-6 á bakinu, þá megum við ekki missa trúna."
Liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð á heimavelli og ekki tekist að skora. Það er áhyggjuefni.
„Hann er það ekki núna. Heimavöllur gefur þrjú stig eins og aðrir. Við höfum verið upp og niður á heimavelli og útivelli í sumar. Auðvitað vilja allir vera góðir heima fyrir framan fólkið sitt og þess vegna erum við mjög súr," sagði Jóhann Kristinn.





