Fotbolti.net
29.07.23 - 21:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Liverpool vill fá Mbappe á láni

Liverpool vill fá Mbappe á láni
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Kylian Mbappe framherja PSG er í mikilli óvissu eftir að Frakkinn hafnaði risatilboði frá Sádí Arabíu.

Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá PSG og hefur sett allt í háaloft en hann vill ekki framlengja og stefnir á að fara frítt til Real Madrid næsta sumar.

Erlendir fjölmiðlar greina nú frá því að Liverpool hafi áhuga á að fá Mbappe á láni út tímabilið sem þýðir að PSG fær pening og Mbappe losnar í burtu og fær drauminn uppfylltan að fara til Real næsta sumar.

Mbappe var í viðræðum við Liverpool áður en hann ákvað að fara til PSG frá Monaco árið 2017.

„Við ræddum aðeins saman, ekki mjög mikið. Ég talaði við Liverpool því það er uppáhalds lið móður minnar, mamma elskar Liverpool. Ég veit ekki af hverju, þú þarft að spurja hana. Það er frábært félag og við hittum þá fyrir fimm árum," sagði Mbappe í samtali við The Telegraph í fyrra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.