mið 29. september 2021 16:00
Arnar Laufdal Arnarsson
„Nýr Haaland" að koma úr verksmiðju RB Salzburg
Benjamin Sesko er spennandi leikmaður.
Benjamin Sesko er spennandi leikmaður.
Mynd: Getty Images
Sesko á æfingu með Salzburg.
Sesko á æfingu með Salzburg.
Mynd: Getty Images
Benjamin Sesko er 18 ára gamall framherji RB Salzburg í Austurríki sem er farinn að vekja mikla athygli. Hefur honum verið mikið líkt við Erling Braut Haaland en hann auðvitað spilaði með Salzburg áður en hann var keyptur til Dortmund.

Sesko var til umræðu í nýjasta þættinum af Ungstirnunum þar sem fjallað er um unga og efnilega leikmenn í boltanum.

Sesko byrjaði ferilinn hjá félaginu Krsko í Slóveníu þar sem hann vakti gríðarlega athygli eftir að hann skoraði 59 mörk í 23 leikjum fyrir unglingalið Krsko. Stuttu seinna var Sesko keyptur til NK Domzale sem er stórt félag í Slóveníu.

Sumarið 2019 voru stærstu lið Evrópu að reyna klófesta kappann en Manchester City, Juventus, Bayern, Dortmund og Ajax voru öll í baráttu um kappann. RB Salzburg vann þetta kapphlaup og umboðsmaður Sesko sagði í viðtali hann var nálægt að fara til Englands eða Ítalíu en þeir töldu Salzburg vera rétta stökkið.

Erling Braut Haaland framherji Dortmund sem kom úr herbúðum Salzburg er eins og margir vita stór og mikill íþróttamaður með frábæra líkamlega getu sem og mikinn hraða, og auðvitað frábær markaskorari. Sesko er einnig mikill íþróttamaður, 194cm á hæð og með mikinn hraða og er hann kominn með gælunafnið „Mini Haaland".

FC Leifering er venslalið Salzburg sem spilar í næst efstu deild Austurríkis og var Sesko sendur þangað á lán tímabilin 19/20 og 20/21. Seinna tímabil framherjans öfluga var stórtkostlegt þar sem hann skoraði 21 mark og lagði upp 7 í 29 leikjum.

Á þessu tímabili hefur hann verið í stóru hlutverki hjá Salzburg, skorað 7 mörk og lagt upp 3 í 13 leikjum í öllum keppnum og virðist hann eiga mjög bjarta framtíð fyrir sér. Mögulega nýr Haaland að koma úr verksmiðju RB Salzburg.

Hlustaðu á Ungstirnin í spilaranum hér að neðan
Ungstirnin - Kristall á línunni og næstu Haaland og Neymar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner