Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. september 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Efnilegur Ástrali á leið í læknisskoðun hjá Newcastle
Eddie Howe stjóri Newcastle
Eddie Howe stjóri Newcastle
Mynd: EPA

Garang Kuol er á leið í læknisskoðun hjá Newcastle en þessu greinir Fabrizio Romano frá.


Kuol er aðeins 18 ára gamall en hann er fæddur í Egyptalandi en hefur búið í Ástralíu lengst af. Hann kemur til Newcastle frá Central Coast Mariners í Ástralíu á láni.

Newcastle hefur þegar rætt við Kuol sem hefur samþykkt að ganga til liðs við félagið.

Kuol á einn A landsleik fyrir Ástralíu en hann kom í þessum mánuði þegar hann kom inná í síðari hálfleik í æfingaleik gegn Nýja Sjálandi.


Athugasemdir
banner
banner