Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 29. október 2019 20:12
Brynjar Ingi Erluson
Mikael Nikulásson tekur við Njarðvík (Staðfest)
Mikael Nikulásson er tekinn við Njarðvík
Mikael Nikulásson er tekinn við Njarðvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikael Nikulásson mun þjálfa Njarðvík í 2. deildinni á næsta tímabili en þetta kemur fram á Twitter í kvöld.

Mikael er álitsgjafi í hlaðvarpsþættinum Dr. Football en hann staðfesti viðræður við Njarðvík í þættinum á föstudag.

Rafn Markús Vilbergsson þjálfaði Njarðvík í Inkasso-deildinni í sumar en lét af störfum á dögunum.

Liðið endaði neðst í Inkasso-deildinni og mun því spila í 2. deild á næsta tímabil.

Mikael er nú tekinn við liðinu en hann þjálfaði Núma árið 2005 og svo ÍH frá 2006 til 2010.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner