Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 29. október 2020 12:25
Elvar Geir Magnússon
Independent spáir því að Rúnar Alex verði í markinu í kvöld
Bernd Leno og Rúnar Alex Rúnarsson á æfingu í gær.
Bernd Leno og Rúnar Alex Rúnarsson á æfingu í gær.
Mynd: Getty Images
Á heimasíðu Independent er því spáð að Rúnar Alex Rúnarsson leiki sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í kvöld þegar liðið tekur á móti Dundalk í Evrópudeildinni.

Hann spilaði ekki með gegn Rapíd Vín í síðustu viku en hann gæti fengið tækifærið í kvöld gegn Dundalk frá Írlandi.

Á Twitter síðu Arsenal í gær var birt mynd af íslenska markverðinum. Er það einhver vísbending?

Bernd Leno hefur varið mark Arsenal í öllum keppnisleikjum tímabilsins en stuðningsmenn telja margir hverjir að kominn sé tími til að Þjóðverjinn verði hvíldur.

Líklegt byrjunarlið Arsenal: Rúnar Alex Rúnarsson, Soares, Mustafi, Gabriel, Kolasinac, Elneny, Ceballos, Nelson, Willock, Pepe, Nketiah.


Athugasemdir
banner
banner
banner