Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 29. október 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Nagelsmann eftir tapið stóra: Ekkert drama
Mynd: Getty Images
„Okkur var pakkað saman en það er ekkert drama. Þetta hefur komið fyrir lið áður," sagði Julian Nagelsmann, þjálfari þýska félagsins RB Leipzig, eftir 5-0 tap gegn Manchester United í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

„Við höfum lært okkar lexíu og við getum spilað mun betur en þetta. Við getum bara kennt sjálfum okkur um þetta stóra tap. Við hefðum getað komið í veg fyrir það."

Jakakföt Nagelsmann vöktu athygli í gær en hann vildi lítið tjá sig um þau eftir leik.

„Ég er fótboltaþjálfari, ekki módel," sagði Nagelsmann stuttur í spuna.

Sjá einnig:
Stærsta tap Nagelsmann sem þjálfara
Nagelsmann og jakkafötin hans
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner