Fotbolti.net
29.10.23 - 11:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heiðar Helgu og Ingi Rafn aðstoða Bjarna Jó (Staðfest)

Heiðar Helgu og Ingi Rafn aðstoða Bjarna Jó (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

Heiðar Helguson og Ingi Rafn Ingibergsson verða aðstoðarþjálfarar Selfoss næsta sumar í 2. deild og munu því aðstoða Bjarna Jóhannsson sem var ráðinn þjálfari liðsins á dögunum.

Heiðar Helguson á langan atvinnumannaferil að baki en hann lék með liðum á borð við Watford, Fulham, QPR, Cardiff og Lilleström.

Hann var aðstoðarþjálfari Kórdrengja frá 2021-2022.

Ingi Rafn þekkir félagið vel en hann var aðstoðarþjálfari liðsins í sumar auk þess að hafa verið þjálfari í yngri flokkum félagsins undanfarin ár.

„Knattspyrnudeild Selfoss bindur miklar vonir við að hæfni og áratugareynsla þessa fyrrum leikmanna muni nýtast knattspyrnudeild Selfoss vel á næstu árum í þeirri uppbyggingu sem framundan er." Segir í tilkynningu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.