Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 30. janúar 2020 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Nahki Wells kominn til Bristol City (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Bristol City er búið að ganga frá félagaskiptum Nahki Wells frá Burnley. Bristol er talið greiða 5 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Wells er 29 ára sóknarmaður sem er fenginn til að hjálpa Bristol að berjast um umspilssæti.

Hann varði fyrri hluta tímabilsins á láni hjá QPR og skoraði 15 mörk í 29 leikjum fyrir félagið.

Wells gekk í raðir Burnley sumarið 2017 og lék 10 leiki fyrir félagið án þess að skora. Hann hefur gert 12 mörk í 19 landsleikjum fyrir Bermúda.

Bristol er búið að vinna þrjá deildarleiki í röð og situr í umspilssæti sem stendur.

Sjá einnig:
Burnley kaupir fyrirliða Bristol City (Staðfest)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner