Enska úrvalsdeildarfélagið Wolverhampton Wanderers hefur keypt Daniel Podence fyrir 16 milljónir punda.
Þessi 24 ára vængmaður kvaddi stuðningsmenn Olympiakos á samfélagsmiðlum í morgun.
Podence fór til gríska félagsins 2018 þegar hann kom frá Sporting Lissabon.
Hann er níundi portúgalski leikmaðurinn í röðum Wolves. Fyrir eru Joao Moutinho, Ruben Neves, Pedro Neto, Rui Patricio, Diogo Jota, Ruben Vinagre, Bruno Jordao og Flavio Cristovao.
Úlfarnir eru í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

✍️ P O D E N C E I S H E R E pic.twitter.com/9IezCGBDgo
— Wolves (@Wolves) January 30, 2020
Athugasemdir