Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   sun 30. janúar 2022 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dyrnar gætu verið að opnast meira fyrir Orra
Orri er einn efnilegasti leikmaður þjóðarinnar.
Orri er einn efnilegasti leikmaður þjóðarinnar.
Mynd: Getty Images
Dyrnar gætu heldur betur verið að opnast fyrir sóknarmanninn Orra Stein Óskarsson hjá FC Kaupmannahöfn í Danmörku.

Þýska úrvalsdeildarfélagið Wolfsburg er nefnilega í viðræðum við FCK um kaup á Jonas Wind.

Wolfsburg ætlar að reyna að fá Wind til sín áður en félagaskiptaglugginn lokar á morgun.

Það er áhugi annars staðar frá á leikmanninum og eru ágætis líkur á því að hann fari fyrir gluggalok. Wind er danskur landsliðsmaður og ef hann fer, þá gætu dyrnar opnast fyrir Orra.

Orri Steinn er 17 ára gamall sóknarmaður sem hefur raðað inn mörkunum í unglinga- og varaliði FCK. Í fyrra skoraði hann 43 mörk í 37 leikjum með unglinga- og varaliði danska félagsins. Þá bætti hann markametið hjá U17 ára liðinu sem var einmitt í eigu Wind.

Hann þykir meðal efnilegustu leikmönnum FCK og ásamt því að gera frábæra hluti með FCK þá hefur hann verið að standa sig vel með U19 ára landsliði Íslands.

Orri hefur verið að spila æfingaleiki með aðalliði FCK og er líklega ekki langt í fyrsta keppnisleikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner