Það verða alls fimm El Clasico viðureignir á þessu tímabili en dregið var í undanúrslit Spænska Konungsbikarsins í dag.
Real Madrid mun mæta Barcelona í tveimur leikjum, fyrri leikurinn fer fram á Santiago Bernabeu heimavelli Real Madrid.
Liðin hafa þegar mæst tvívegis á tímabilinu og hefur hvort lið unnið 3-1 sigur.
Real Madrid mun mæta Barcelona í tveimur leikjum, fyrri leikurinn fer fram á Santiago Bernabeu heimavelli Real Madrid.
Liðin hafa þegar mæst tvívegis á tímabilinu og hefur hvort lið unnið 3-1 sigur.
Osasuna vann Sevilla í 8-liða úrslitum og mæta Bilbæingum í Athletic Club í undanúrslitum. Fyrri leikurinn verður á heimavelli Osasuna.
Athletic vonast til að komast í sinn þriðja úrslitaleik á fjórum árum.
Athugasemdir