Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 30. apríl 2019 21:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Læknateymi Tottenham harðlega gagnrýnt
Mynd: Getty Images
Jan Vertonghen fór meiddur af velli þegar Tottenham tapaði 1-0 gegn Ajax í Meistaradeildinni í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum og fer seinni leikurinn fram í Hollandi í næstu viku.

Vertonghen fékk þungt höfuðhögg og var mjög vankaður eftir það.

Á einhvern óskiljanlegan hátt var Vertonghen leyft að halda áfram. Hann var þó ekki mikið lengur inn á vellinum. Hann gat hreinlega ekki haldið áfram.

Það var óhugnalegt að sjá Vertonghen fara af velli. Það þurfti að styðja við hann. Líklega var hann með heilahristing.

Læknateymi Tottenham var harðlega gagnrýnt á Twitter fyrir að leyfa Vertonghen að halda áfram.

Hér að neðan má sjá það þegar Vertonghen fór af velli.



















Athugasemdir
banner
banner
banner
banner