Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   lau 30. maí 2026 17:30
Hafþór Örn Laursen
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Kvenaboltinn
Anton Ingi, þjálfari Fram
Anton Ingi, þjálfari Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ingi, þjálfari Fram, sagðist vera mjög svekktur eftir leik Fram gegn FH, sem fór 6-2 fyrir FH nú í 7. umferð Bestu Deildar Kvenna.

Lestu um leikinn: FH 6 -  2 Fram

„Ég er svekktur, líka út í sjálfan mig að hafa breytt aðeins of mikið í fyrri hálfleik eftir að vel gekk.''

Við spiluðum fyrri hálfleikinn alveg eins og við vildum spila hann og úr honum koma tvö góð mörk frá Taylor. Við fáum á okkur svo mark snemma í seinni og þá er eins og við missum einhvern veginn trúnna og mér finnst það fyrsti leikurinn okkar í sumar sem það gerist.''


Fram var yfir 1-2 í fyrri hálfleik en misstu svo alveg tökin í seinni hálfleik. Hvað klikkaði?

„Við ætluðum okkur að vera þéttar en svo opnast flóðgáttir hjá okkur í vörninni og þær komast of auðveldlega í gegnum okkur.''

Framundan er tveggja vikna frí í Bestu Deild kvenna, en Fram spilar sinn næsta leik gegn Grindavík/Njarðvík á heimavelli þann 13. júní.

„Við ætlum að taka okkur fimm daga í frí og ætlum að reyna halda okkar striki. Við náðum góðum sigri gegn Þór/KA seinast og ætlum að ná í þessi þrjú stig.''

Fram situr í 9. sæti eftir þennan leik með 4 stig.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

Slapp