Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 16:14
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Tíu mörk á Akureyri - Stórsigrar hjá Breiðabliki og FH
Kvenaboltinn
Freyja og Jasmín voru frábærar í sigri Víkinga
Freyja og Jasmín voru frábærar í sigri Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nia setti þrennu fyrir FH gegn Fram
Nia setti þrennu fyrir FH gegn Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Agla María skoraði tvö í 5-0 sigri Blika
Agla María skoraði tvö í 5-0 sigri Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Snædís María gerði annað mark Stjörnunnar gegn ÍBV
Snædís María gerði annað mark Stjörnunnar gegn ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var sannkallað markaflóð í 7. umferð Bestu deildar kvenna í dag.

Við byrjum á leik Þórs/KA og Víkings þar sem tíu mörk voru skoruð í 6-4 sigri Víkinga.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir var ekki lengi að koma Víkingum í forystu en fyrsta markið kom eftir aðeins eina mínútu.

Þær gerðu þrjú mörk á átta mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleikinn. Freyja Stefánsdóttir skoraði eftir stungusendingu og þá gerði Jasmín Erla Ingadóttir þriðja mark gestanna með skalla eftir hornspyrnu áður en Freyja gerði annað mark sitt eftir hraða sókn.

Staðan 4-0 fyrir Víkingum þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks, en mörkin héldu áfram að flæða í þeim síðari.

Arna Sif Ásgrímsdóttir minnkaði muninn á 59. mínútu eftir hornspyrnu en Víkingar svöruðu með tveimur mörkum á nokkrum mínútum. Dagný Rún Pétursdóttir skoraði eftir hraða sókn og þá gerði Jasmín Erla annað mark sitt eftir klaufaleg mistök Alessöndra Dorothy Augurí markinu.

Á síðustu tuttugu mínútunum náði Þór/KA að klóra í bakkann með þremur mörkum. Karen María Sigurgeirsdóttir skallaði í stöng og inn áður en Ísfold Marý Sigtryggsdóttir varð fyrir því óláni að skora í eigið net með bakinu.

Emelía Ósk Kruger átti síðan síðasta orðið með marki eftir hornspyrnu undir lok leiks, en lengra komust heimakonur ekki og 6-4 sigur Víkinga staðreynd. Ótrúlegar tölur á VÍS-vellinum.

Víkingur er í 6. sæti með 9 stig en Þór/KA á botninum með aðeins 2 stig.

Annar markaleikur í Hafnarfirði

FH-ingar unnu á sama tíma magnaðan 6-2 endurkomusigur á Fram í Kaplakrika.

Ingibjörg Magnúsdóttir kom FH á bragðið á 15. mínútu með smá heppni eftir að Ashley Brown Orku missti boltann klaufalega úr höndum sér.

Fram svaraði um hæl eftir stórkostlegt hlaup Taylor Marie Hamlett sem náði síðan að koma Fram í forystu þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum.

FH gersamlega valtaði yfir Fram í þeim síðari. Nia Raisa Christopher gerði tvö mörk á sjö mínútum áður en Helena Maree Errington gerði fjórða markið. Ingibjörg með mark og tvær stoðsendingar í leiknum.

Hafrún Birna Helgadóttir gerði fimmta markið á 83. mínútu áður en Nia fullkomnaði þrennu sína með marki úr vítaspyrnu undir lok leiks.

Stórkostleg endurkoma FH-inga sem eru í öðru sæti með 16 stig en Fram í næst neðsta sæti með 4 stig.

Stórsigur hjá Blikum

Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks unnu 5-0 stórsigur á Grindavík/Njarðvík á Stakkavíkurvelli.

Blikar komust í 2-0 forystu á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði snemma leiks er Lauren Kellett, markvörður Grindavíkur/Njarðvíkur, ætlaði að sparka boltanum fram, en rann til og sendi boltann beint á Hrafnhildi sem skoraði.

Katelyn Duong gerði annað markið á 15. mínútu. Hrafnhildur fékk boltann og datt eftir viðskipti sín við Nathösu Anasi, en Duong var mætt til að klára, annars hefði dómari leiksins líklega dæmt vítaspyrnu.

Staðan 2-0 í hálfleik. Blikar nýttu sín færi vel en Grindavík/Njarðvík kom sér í góðar stöðu án þess að nýta þær.

Agla María Albertsdóttir gerði út um leikinn snemma í síðari hálfleiknum sem setti boltann í gegnum klofið á Lauren í markinu eftir vippusendingu frá Líf Joostsdóttur van Bemmel.

Agla gerði síðan annað mark sitt á 64. mínútu en Karitas Tómasdóttir var arkitektinn í þetta sinn áður en Líf kórónaði frábæra frammistöðu Blika með fimmta markinu aðeins þremur mínútum síðar.

Enn eina frábæra frammistaðan hjá Blikum sem eru á toppnum með 18 stig en Grindavík/Njarðvík í 7. sæti með 8 stig.

Góður sigur Stjörnunnar

Stjarnan vann nýliða ÍBV, 2-0, á Samsung-vellinum í Garðabæ.

Stjörnukonur voru mun betri aðilinn og fengu aragrúa af færum til að komast í forystu í fyrri hálfleiknum. Guðný Geirsdóttir var að eiga stórleik í marki Eyjakvenna, en eitthvað hlaut að bregðast.

Fanney Lísa Jóhannesdóttir átti þrumuskot í upphafi síðari hálfleiks sem Guðný varði inn og þá gerði Snædís María Jörundsdóttir mikilvægt annað mark liðsins þegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Stjarnan er í 5. sæti með 11 stig en ÍBV í 3. sæti með 13 stig og ekki unnið í síðustu þremur leikjum.

Úrslit og markaskorarar:

FH 6 - 2 Fram
1-0 Ingibjörg Magnúsdóttir ('15 )
1-1 Taylor Marie Hamlett ('19 )
1-2 Taylor Marie Hamlett ('43 )
2-2 Nia Raisa Christopher ('50 )
3-2 Nia Raisa Christopher ('62 )
4-2 Helena Maree Errington ('65 )
5-2 Hafrún Birna Helgadóttir ('83 )
6-2 Nia Raisa Christopher ('90 , víti)
Lestu um leikinn

Stjarnan 2 - 0 ÍBV
0-0 Andrea Mist Pálsdóttir ('10 , misnotað víti)
1-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('48 )
2-0 Snædís María Jörundsdóttir ('85 )
Lestu um leikinn

Grindavík/Njarðvík 0 - 5 Breiðablik
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('1 )
0-2 Katelyn Duong ('15 )
0-3 Agla María Albertsdóttir ('51 )
0-4 Agla María Albertsdóttir ('64 )
0-5 Líf Joostdóttir van Bemmel ('67 )
Lestu um leikinn

Þór/KA 4 - 6 Víkingur R.
0-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('1 )
0-2 Freyja Stefánsdóttir ('23 )
0-3 Jasmín Erla Ingadóttir ('27 )
0-4 Freyja Stefánsdóttir ('31 )
1-4 Arna Sif Ásgrímsdóttir ('59 )
1-5 Dagný Rún Pétursdóttir ('61 )
1-6 Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('66 )
2-6 Karen María Sigurgeirsdóttir ('72 )
3-6 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('74 , sjálfsmark)
4-6 Emelía Ósk Kruger ('87 )
Lestu um leikinn
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 7 6 0 1 21 - 8 +13 18
2.    FH 7 5 1 1 18 - 9 +9 16
3.    ÍBV 7 4 1 2 13 - 13 0 13
4.    Þróttur R. 7 4 0 3 11 - 7 +4 12
5.    Stjarnan 7 3 2 2 10 - 7 +3 11
6.    Víkingur R. 7 3 0 4 14 - 17 -3 9
7.    Grindavík/Njarðvík 7 2 2 3 8 - 13 -5 8
8.    Valur 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
9.    Fram 7 1 1 5 8 - 18 -10 4
10.    Þór/KA 7 0 2 5 11 - 19 -8 2
Slapp
banner
banner