Hollenski þjálfarinn Arne Slot var rekinn frá Liverpool í morgun og er þá tilefni til að glugga í bestu og verstu kaup á tíma hans hjá félaginu.
Listinn er ekki langur enda fékk Slot aðeins níu leikmenn til félagsins á þessum tveimur árum.
Liverpool.com birti áhugaverðan lista þar sem farið er yfir öll kaup Slot. Þó var gerð ein breyting á listanum þar sem Freddie Woodman er færður hærra eftir góða frammistöðu undir lok tímabilsins.
Franski sóknarmaðurinn Hugo Ekitike er talinn bestu kaup Liverpool á tímabilinu, en hann heillaði áður en hann sleit hásin. Ítalski varnarmaðurinn Giovanni Leoni náði hins vegar lítið að sýna sig vegna krossbandsslita sem hann varð fyrir í fyrsta og eina leik sínum á tímabilinu, gegn Southampton í deildabikarnum.
Hér fyrir neðan má sjá listann í heild sinni. Kaupin raðast frá þeim verstu til þeirra bestu.
9. Giovanni Leoni (Frá Parma) - Sleit krossband í fyrsta leik sínum gegn Southampton. Leit mjög vel út í leiknum, en einhverstaðar verður hann að vera á þessum lista. Að vera tiltækur er besti eiginleikinn, en hann er þó gríðarlegt efni og fær aftur tækifæri til að sanna sig.
8. Alexander Isak (Frá Newcastle) - Keyptur fyrir metfé undir lok síðasta sumarglugga. Missti af undirbúningstímabilinu með Newcastle og var mikið frá vegna meiðsla. Verðmiðinn setti mikla pressu á Isak sem stóðst alls ekki þær væntingar sem gerðar voru til hans.
7. Jeremie Frimpong (Frá Bayer Leverkusen) - Fengu hann heldur ódýrt, en hann eins og Isak hefur verið mikið frá vegna meiðsla og ekki verið neitt sérstaklega sannfærandi þegar hann hefur spilað. Með mikinn hraða, sem virðist eina vopn hans, og allt of útreiknanlegur.
6. Giorgi Mamardashvili (Frá Valencia) - Keyptur árið 2024 en lánaður aftur til Valencia. Hann var varamarkvörður Alisson áður en Brasilíumaðurinn meiddist. Það var stórt skarð að fylla og Mamardashvili hefur ekki enn sýnt fyllilega fram á að hann sé klár í að verða framtíðarmarkvörður félagsins.
5. Federico Chiesa (Frá Juventus) - Fenginn fyrir lítið árið 2024, en var aldrei í áætlunum Slot. Átti nokkra góða leiki inn af bekknum, en fékk aldrei traustið.
4. Florian Wirtz (Frá Bayer Leverkusen) - Liverpool keypti hann fyrir metfé áður en það setti nýtt met með kaupunum á Alexander Isak. Var lengi í gang og hafði alls ekki nógu mikil áhrif miðað við verðmiða, en oft sýnt að gæðin eru til staðar.
3. Freddie Woodman (Frá Preston) - Kom á frjálsri sölu frá Preston sem þriðji markvörður og fékk óvænt tækifærið undir lok tímabilsins þegar Alisson og Mamardashvili voru meiddir. Hann stóð sig vel í þeim leikjum sem hann spilaði.
2. Milos Kerkez (Frá Bournemouth) - Einn af þessum leikmönnum sem á eftir að sýna meira, en varð betri og betri þegar leið á tímabilið. Slot gerði þau mistök að byrja ekki Andy Robertson í fleiri leikjum til þess að leyfa Kerkez að læra betur inn á hlutverkið. Andoni Iraola mun eflaust ná því besta fram úr honum þegar hann tekur við liðinu enda áttu þeir tveir farsælt samstarf hjá Bournemouth.



