Íslendingalið Malmö vann sinn fyrsta leik síðan í lok apríl er liðið hafði sigur gegn Halmstad, 5-2, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Á dögunum var Miguel Angel Ramirez rekinn sem þjálfari Malmö eftir slakt gengi.
Liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð og var ákveðið að láta Ramirez taka poka sinn.
Guillermo Molins stýrði Malmö í dag og kom fyrsti sigurinn í rúman mánuð. Erik Botheim skoraði þrennu fyrir Malmö.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn af bekknum, en Arnór Sigurðsson var ekki með. Malmö er í 9. sæti með 13 stig.
Róbert Frosti Þorkelsson byrjaði hjá GAIS sem vann 3-0 sigur á Kalmar.
Hann fór af velli þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. GAIS er í 5. sæti með 15 stig.
Nóel Atli Arnórsson byrjaði hjá Álaborg sem marði 1-0 sigur á Köge í lokaumferðinni í fallriðli dönsku B-deildarinnar í dag. Álaborg hafnaði í efsta sæti riðilsins með 46 stig.
Ólafur Hjaltason var í vörn Aarhus Fremad sem gerði 2-2 jafntefli við B93. Fremad hafnaði í næst efsta sæti með 44 stig.


