Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 14:43
Brynjar Ingi Erluson
„Ef afi minn væri með dekk, þá væri hann bíll“
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er meiddur og er óljóst hvort hann verði með í fyrsta leik Brasilíumanna á heimsmeistaramótinu í næsta mánuði, en Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, var spurður út í fjarveru hans og valið.

Ancelotti ákvað að velja Neymar í hópinn eftir miklar vangaveltur síðustu mánuði.

Neymar hefur verið í frábæru formi með Santos í brasilísku deildinni og ákvað Ancelotti að taka sénsinn á honum.

Á dögunum meiddist Neymar og ljóst er að hann verður frá næstu vikurnar. Hann mun líklega missa af fyrsta leiknum gegn Marokkó, sem fer fram 14. júní.

Ancelotti var spurður að því á fréttamannafundi hvort hann hefði valið Neymar ef hann hefði vitað af meiðslunum. Ítalinn svaraði skemmtilega og tók það fram að Neymar verður áfram með hópnum þó hann gæti misst af fyrsta leiknum.

„Veistu hvað við segjum á Ítalíu? Ef afi minn væri með dekk, þá væri hann bíll.“

„Við erum að búast við að Neymar verði klár fyrir fyrsta leikinn gegn Marokkó eða í öðrum leiknum, Við munum ekki gera neinar breytingar. Þetta eru leikmennirnir sem ég valdi og ég hef engin áform um að breyta hópnum fyrir HM,“
sagði Ancelotti.

Það muna eflaust margir eftir því þegar ítalski stjörnukokkurinn Gino D'Acampo henti í svipað orðatiltæki í sjónvarpsþættinum This Morning árið 2010. Þá sagði hann að ef amma hans væri með dekk, þá væri hún hjól.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner