Paris Saint Germain 1 - 1 Arsenal (4-3 í vítaspyrnukeppni)
0-1 Kai Havertz ('6 )
1-1 Ousmane Dembele ('65 , víti)
0-1 Kai Havertz ('6 )
1-1 Ousmane Dembele ('65 , víti)
PSG er sigurvegari í Meistaradeildinni annað árið í röð eftir sigur á Arsenal í vítaspyrnukeppni.
Arsenal fékk draumabyrjun þegar Kai Havertz skoraði eftir sex mínútna leik. Marquinhos reyndi að hreinsa boltanum sem fór af Leandro Trossard og í hlaupaleið Havertz sem keyrði alla leið upp að endamörkum áður en hann hamraði boltanum í þaknetið.
Havertz hefur skorað gríðarlega mikilvæg mörk á ferlinum en hann skoraði sigurmark Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2021.
Khvicha Kvaratskhelia gerði hrikalgea vel að komast í gott færi stuttu síðar en Gabriel gerði mjög vel að komast fyrir skotið.
PSG var mikið meira með boltann í fyrri hálfleik en náði ekki að koma boltanum í netið. Havertz fékk upplagt tækifæri til að tvöfalda forystuna undir lok fyrri hálfleiks en Marquinhos bjargaði frábærlega í þetta sinn.
Arsenal tók sér góðan tíma í að taka föst leikatríði og dómarinn flautaði fyrri hálfleikinn af þegar Bukayo Saka tók sér sinn tíma í að taka hornspyrnu.
Dómarinn refsaði Arsenal-mönnum strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Cristhian Mosquera fékk gult spjald fyrir töf.
Hann var síðan mögulega heppinn að fá ekki sitt annað gula spjald þegar hann braut á Khvicha Kvaratskhelia og vítaspyrna dæmd. Ousmane Dembele tók vítið, sendi David Raya í rangt horn og skoraði.
Þegar tæpur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma komst Kvaratskhelia upp í skyndisókn en skot hans hafnaði í stönginni.
Bradley Barcola var hársbreidd frá því að tryggja PSG sigurinn í blálokin en skaut í hliðarnetið og það þurfti því að framlengja.
Arsenal vildi fá vítaspyrnu þegar Noni Madueke féll eftir viðskipti við Nuno Mendes en ekkert dæmt. Declan Rice og Mikel Arteta voru ekki sáttir og uppskáru gult spjald.
Hvorugu liðinu tókst að skora sigurmarkið og grípa þurfti því til vítaspyrnukeppni.
Goncalo Ramos og Desire Doue skoruðu úr fyrstu spyrnum PSG. Viktor Gyökeres skoraði úr fyrstu spyrnu Arsenal en Eberechi Eze skaut framhjá. David Raya varði síðan víti frá Nuno Mendes og Declan Rice skoraði. Staðan var því 2-2 eftir þrjár umferðir.
Achraf Hakimi og Lucas Beraldo skoruðu úr næstu spyrnum PSG og Gabriel Martinelli fyrir Arsenal en varnarmaðurinn Gabriel skaut yfir úr síðustu spyrnu leiksins og PSG tryggði sér sigur í Meistaradeildinni annað árið í röð.
