Declan Rice var að vonum vonsvikinn eftir tap Arsenal í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn PSG eftir vítaspyrnukeppni.
„Það er hrikalegt að tapa úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vítaspyrnukeppni. Við reynum að taka tillit til þess hversu langt við höfum komist sem lið. Ótrúlegt tímabil. Okkar 63. leikur í öllum keppnum. Við höfum gefið allt í þetta," sagði Rice.
„Við fórum alla leið í vítaspyrnukeppni, þetta er lottó, maður tapar eða vinnur í vítaspyrnukeppni. Einhver af bestu liðum heims hafa tapað í vítaspyrnukeppni. Við vinnum saman og töpum saman. Ég er stoltur af strákunum. Þvílíkt tímabil. Ég get ekki hrósað öllum nóg. Ég er auðvitað miður mín en við mætum aftur."
Rice fékk gult spjald fyrir mótmæli þegar Arsenal fékk ekki vítaspyrnu þegar Noni Madueke féll í teignum eftir baráttu við Nuno Mendes.
„Ég hef ekki séð það aftur en á vellinum fannst mér Madueke komast fram fyrir hann. VIð fengum svipað víti gegn Leverkusen. Ég ætla ekki að fara út í það núna," sagði Rice.
„Maður verður að vera andlega tilbúinn gegn PSG. Við uxum ásmegin þegar leið á leikinn og sköpuðum mörg færi."


