Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 30. júní 2022 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kundai kominn með leikheimild með ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Kundai Benyu er kominn með leikheimild með ÍBV en hann kemur frá Vestra. Kundai samdi við ÍBV í maí en skiptin gengu ekki í gegn fyrr en glugginn opnaði í gær.

Kundai er 24 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður og kom til Vestra frá Wealdstone í febrúar í fyrra. Hann ólst upp hjá Ipswich Town á Englandi áður en hann hélt til Celtic í Skotlandi. Þar spilaði hann einn leik fyrir aðalliðið undir stjórn Brendan Rodgers áður en hann fór til Helsingborg árið 2019.

Hann lék með landsliðið Simbabve á Afríkumótinu í janúar.

Kundai gæti leikið sinn fyrsta leik með ÍBV þegar liðið fær Breiðablik í heimsókn á laugardag. Sá leikur er liður í 11. umferð Bestu deildarinnar. ÍBV er í neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Sjá einnig:
Kundai vildi ekki spila í Lengjudeildinni
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner