Monza búið að kaupa Pablo Marí (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Arsenal


Mynd: EPA
Arsenal er búið að staðfesta brottför Pablo Marí frá félaginu en hann skiptir yfir til ítalska félagsins Monza, sem borgar um 7 milljónir evra fyrir.
Mari er 29 ára gamall miðvörður sem var meðal lykilmanna Monza á síðustu leiktíð, þar sem hann lék á lánssamningi frá Arsenal.
Það kom mörgum á óvart þegar Arsenal keypti Mari á sínum tíma en hann fékk lítinn spiltíma og var svo lánaður í ítalska boltann, fyrst til Udinese og svo til Monza.
Það fylgdi kaupskylda með lánssamningnum til Monza sem virkjaðist sjálfkrafa þegar félagið bjargaði sér frá falli úr efstu deild.
Hann reyndist gríðarlega mikilvægur í fallbaráttunni þrátt fyrir að hafa misst af nokkrum leikjum í kjölfar stunguárásar sem fór í fjölmiðla um allan heim.


Mynd: Arsenal



